Mikill meirihluti íbúanna í ESB telur sambandið gagnlegt og vill frekari samvinnu.


Það er oft fullyrt að ESB mundi aldrei veita undanþágur um full yfirráð yfir fiskiveiðilögsögu. Staðreyndin er samt sú að þetta gerðu þeir í aðildarviðræðum við Noreg á sínum tíma sem fékk þar full yfirráð yfir sínum fiskimiðum í kringum eyjarnar Svalbarða og Jan Mayen (samningnum var síðan hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu). Þetta sýnir fram á þá sérstöðu að eyjar með engin landamæri að öðrum, geta fengið sér undanþágur gagnvart ESB um yfirráð í fiskiveiðum.
Nú er ég ekki búinn að gera upp við mig hvort aðild að ESB sé hagstæð fyrir Ísland og þess vegna styð ég að fara í viðræður til að komast að því hvað er mögulegt í þessum efnum. Mér finnst fólk sem vill ekki þessar viðræður vera að reyna að taka af mér þau mannréttindi að fá aðgang að þessum upplýsingum. Hvers vegna í ósköpunum ætti að vera hættulegt að ræða málin?
SJÁUM SVO DÁLÍTIÐ AF STAÐREYNDUM SEM FENGNAR VORU MEÐ HJÁLP GAGNAGREINDAR
74 % þeirra sem eru í Evrópusambandinu telja að land þeirra hafi notið góðs af því að vera í ESB, sem er mesta jákvæðni í sögu kannana frá því spurningin var fyrst spurð árið 1983.
Um 66 % vilja að ESB taki stærra hlutverk í öryggismálum og alþjóðlegum ógnum.
90 % telja að ríki ættu að vinna saman betur við stærri vandamál eins og loftslagsbreytingar eða öryggi.
HVAÐ KANN FÓLK AÐ META:
Öryggi og friður – flestir telja ESB hjálpa til við að verja þetta.
Efnahagur og samvinna – mikill meirihluti telur að ESB hafi stutt efnahagslíf landsins.
Sameiginlegt markaðssvæði og gjaldmiðillinn evra fá mjög sterka stuðningsprósentu.
Í STUTTU MÁLI:
Mikill meirihluti íbúanna í ESB telur sambandið gagnlegt og vill frekari samvinnu.
Traust við ESB hefur aukist á undanförnum árum.
Skoðanir eru misjafnar eftir löndum og sumir hafa áhyggjur af efnahagsmálum eða innflytjendamálum.
Eurobarometer kannanir eru opinberar kannanir sem ESB framkvæmir reglulega niður á landsstigi í öllum 27 aðildarríkjum. Þær byggja á tugþúsund viðtölum í hverri framkvæmd og eru almennt taldar sérfræðilega traustar til að greina almenna skoðun íbúa á ESB.




Comments